Hrútur (20. mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær
egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta
aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að
keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí
loftið. Þú
ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og
einfaldur þú ert.
MAMMA...
Naut (20. apríl - 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu
staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina
sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi
efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína
hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.
Tvíburi (21. maí - 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur,
alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með
hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda
sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við.
Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og
óþarfa.
Audur, Gretar, Dori...
Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun
aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema
með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því
fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist
þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En
svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og
sjálfsvorkunnsamur.
Gulla og öll hin FALLEGU ljónin
Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af
eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar
ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur
og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú
ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.
Stella, Pabbi
Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður
í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en
segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum,
þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en
stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.
Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og
vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í
fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka
ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of
latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra
fyrir öðrum.
Eva & Gurry
Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og
valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því
einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn,
móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort
frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila
sama lagið.
Sara
Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í
öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt
erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og
veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum
á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.
Steingeit (21. desember - 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll
vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að
skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki
gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda með
minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum
og merkjavöru.
Inga Birna
Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn,
og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða
getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo
sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika,
að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur
á skýi í háloftunum.
Vala & Ingunn
Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur
ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða
átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En
þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir
ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja
raunveruleikann.